Fara í efni

Vilja ræða hugsanlega uppbyggingu ferðaþjónustu á Grímsstöðum

Stjórn og trúnarðarmannaráð Framsýnar- stéttarfélags kom saman til fundar síðdegis í gær. Helstu málefni fundarins voru atvinnumál í héraðinu og kaup Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum.

Stjórn og trúnarðarmannaráð Framsýnar- stéttarfélags kom saman til fundar síðdegis í gær. Helstu málefni fundarins voru atvinnumál í héraðinu og kaup Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum.

Land Grímsstaða er á félagssvæði Framsýnar og því koma félagsmenn Framsýnar til með að starfa við ferðaþjónustuna á Grímsstöðum verði hún að veruleika.

Samþykkt var að óska þegar í stað eftir fundi með Huang varðandi hugsanlega uppbyggingu ferðaþjónustu á Grímsstöðum á næstu árum. Þá samþykkti fundurinn jafnframt að senda frá sér eftirfarandi ályktun um atvinnumál:

 „Í Þingeyjarsýslum er geysifögur náttúra, gott framtakssamt fólk og gnægð annarra auðlinda. Mikil undirbúningsvinna í atvinnumálum hefur staðið yfir á svæðinu á vettvangi heimamanna, stjórnvalda, sveitarfélaga og fyrirtækja sem nú virðist ætla að skila tilætluðum árangri.

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar – stéttarfélags fagnar jákvæðum fréttum um áhuga framtakssamra aðila á að auka umsvif á svæðinu og nýta til þess umhverfi, hugvit og auðlindir svæðisins í sátt við umhverfið.

Mikill kraftur er nú í undirbúningi að uppbyggingu orkufreks iðnaðar á Bakka við Húsavík. Bæði stór og meðalstór fyrirtæki hafa sýnt því áhuga að setja niður atvinnustarfsemi á Bakka. Samfara þessu er nú unnið að vegagerð á Reykjaheiði og borunum á Þeistareykjum sem vonandi leiða til þess að framkvæmdir við byggingu orkumannvirkja hefjist á Þeistareykjum og í Bjarnarflagi sem fyrst.

Jafnframt eru uppi áform um stórfellda uppbyggingu ferðaþjónustu, s.s. á Grímsstöðum á Fjöllum, auk þess sem flugfélagið Ernir mun hefja áætlunarflug til Húsavíkur næsta vor sem eru mikil gleðitíðindi, ekki síst fyrir ferðaþjónustuna. Þá er unnið að frekari endurbótum á samgöngukerfinu í Þingeyjarsýslum s.s. með Vaðlaheiðargöngum. Samhliða þessu virðast gróin fyrirtæki í sjávarútvegi og landbúnaði halda sínu, sem eru grunnstoðir atvinnulífsins í héraðinu.

Framsýn – stéttarfélag hvetur stjórnvöld og aðra til að vinna þétt og styðjandi við þá aðila sem vinna að því að styrkja og bæta atvinnu- og mannlíf í Þingeyjarsýslum. Verði rétt haldið á málum verða Þingeyjarsýslur á komandi árum eitt heitasta svæðið til atvinnuuppbyggingar á Íslandi sbr. áhuga fjárfesta á að setja niður öfluga atvinnustarfsemi í Þingeyjarsýslum.“

(http://www.640.is/)