Fara í efni

Vilt þú vekja athygli á verðugu verkefni?

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 16. sinn við athöfn í  Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí næstkomandi. 

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 16. sinn við athöfn í  Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí næstkomandi. 

Heimili og skóli – landssamtök foreldra óska eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011 frá einstaklingum, félögum eða hópum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum, sem stuðla að eflingu á skólastarfi og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins.

Með afhendingu verðlaunanna er vakin eftirtekt á því fjölbreytta starfi sem fer fram innan leik- grunn- og framhaldsskóla og stuðlar að því að efla jákvætt og öflugt samstarf heimila, skóla og samfélagsins.  

Fólk er hvatt til að líta eftir og tilnefna verðug verkefni í sínu nærumhverfi.

Tilnefningar sendist á rafrænan hátt með því að fylla út eyðublað á heimasíðu Heimilis og skóla http://www.heimiliogskoli.is/. Síðasti skiladagur tilnefninga er fimmtudagur 28. apríl 2011.

Nánari upplýsingar um Foreldraverðlaunin er að finna á heimasíðu samtakanna http://www.heimiliogskoli.is/. Einnig eru veittar upplýsingar á skrifstofu samtakanna í síma 516 0100.