Fara í efni

Viltu gerast lestrarhetja? Taktu þá þátt í sumarlestrinum á Bókasafninu

Viltu gerast lestrarhetja? Taktu þá þátt í sumarlestrinum á Bókasafninu!

Öll börn á grunnskólaaldri geta nálgast sumarlestursheftið á Bókasafninu.

Það inniheldur sex lestraráskoranir og skemmtilegt ofurhetjuspil. Lestrarákorunin er að ná að lesa samanlagt í ákveðinn fjölda mínútna sem lestrarhetjan setur sér í samráði við foreldri eða annan fullorðinn. Hvað ætlar þú að lesa margar mínútur á einni viku? Í hvert sinn sem áskorun lýkur kvittar foreldri/forráðamaður og lestrarhetjan heimsækir bókasafnið með staðfestinguna til þess að fá límmiða til að líma á spilaborðið.

Spilaborðið er mynd af Skarkalabæ. Í Skarkalabæ er allt í rugli! Það þarf að bjarga fólki og furðuverum úr bráðri hættu og það strax! Þú getur verið lestrarhetjan sem bjargar deginum með aðal ofurkraftinum, orðaforðanum! Spilið er samvinnuspil þar sem spilarar hjálpast að við að bjarga fólki og furðuverum í vanda.

Með hverjum límmiða sjáum við enn betur hvað það er sem er í gangi í Skarkalabæ. Þannig stækkar spilið með hverri lestraráskorun sem lestrarhetjan klárar í sumar.

Myndirnar eru eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og borðspilið er hannað af Steingerði Lóu Gunnarsdóttur. Hugmyndavinnan er unnin í samstarfi við vinnuhóp sem er skipaður af barnabókavörðum á almenningsbókasöfnum um allt land og er efnið gefið út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Sumarlesturinn stendur yfir frá 6. júní til 16. ágúst á Bókasafninu á Húsavík og 6. júní til 24. júlí á Bókasafni Öxarfjarðar. Árangrinum verður svo fagnað með uppskeruhátíðum. Þá fara allar hetjur sem kláruðu spilaborðið í pott og dregnir verða út vinningar!

Vertu með - bjargaðu Skarkalabæ!