Fara í efni

Vorsýning Grænuvalla

Miðvikudaginn, 12. maí verður vorsýning á leikskólanum Grænuvöllum. Þar verða listaverk barnanna til sýnis og verður sýningin opin frá kl. 8-11 og 13-16 auk þess sem nemendur sýna atriði á sal.

Miðvikudaginn, 12. maí verður vorsýning á leikskólanum Grænuvöllum. Þar verða listaverk barnanna til sýnis og verður sýningin opin frá kl. 8-11 og 13-16 auk þess sem nemendur sýna atriði á sal.

Sýningarnar verða á eftirfarandi tímum:

Nemendur á Vilpu og Fossi sýna klukkan 9:30. Nemendur á Bergi og Bala sýna klukkan 10:00 og að síðustu nemendur á Tungu og Árholti sýna klukkan 10:30.

Sýningin er öllum bæjarbúum opin og eru allir hvattir til að koma og sjá afrakstur vetrarins hvort sem það eru ömmur, afar, frændur, frænkur, mömmur, pabbar, systkini eða bara aðrir bæjarbúar.