Ósk um að kynna verkefnið "Garðarshólmur" fyrir bæjarstjórn
Málsnúmer 201205032
Vakta málsnúmerBæjarráð Norðurþings - 45. fundur - 09.05.2012
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Valgerði Sverrisdóttir, f.h. stjórnar Garðarshólms, þar sem óskað er eftir að fá að kynna verkefnið "Garðarshólm" fyrir bæjarstjórn eins fljótt og aðstæður leyfa. Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir erindið. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að ræða við bréfritara um verkefnið og tímasetningar slíks kynningarfundar.
Bæjarráð Norðurþings - 46. fundur - 24.05.2012
Fyrir bæjarráð mættu Valgerður Sverrisdóttir og Árni Sigurbjarnarson til að kynna verkefnið "Garðarshólmur". Bæjarráð þakkar þeim fyrir góða kynningu á stöðu verkefnisins.