Gjaldskrár fræðslusviðs 2023
Málsnúmer 202209126
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 129. fundur - 04.10.2022
Fjölskylduráð fjallar um gjaldskrár fræðslusviðs 2023. Lögð er til 7,5% hækkun gjaldskráa skólamötuneyta, leikskóla, Frístundar og Tónlistarskóla Húsavíkur samkvæmt spá Hagstofu Íslands um hækkun neysluvísitölu árið 2023.
Fjölskylduráð samþykkir gjaldskrárnar og vísar þeim til kynningar í byggðarráði og samþykktar í sveitarstjórn.
Byggðarráð Norðurþings - 409. fundur - 11.10.2022
Á 129. fundi fjölskylduráðs 4. október 2022, var eftirfarandi bókað: Fjölskylduráð samþykkir gjaldskrárnar og vísar þeim til kynningar í byggðarráði og samþykktar í sveitarstjórn.
Lagt fram til kynningar.