Rekstrarsamningur við Skotfélag Húsavíkur 2025-2028
Málsnúmer 202408073
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 193. fundur - 03.09.2024
Rekstrarsamningur við Skotfélag Húsavíkur rennur út í lok árs 2024. Á fund fjölskylduráðs mæta fulltrúar frá Skotfélagi Húsavíkur og ræða um áframhaldandi rekstrarsamning við félagið.
Fjölskylduráð þakkar Gylfa og Halli fyrir komuna á fundinn og fyrir kynninguna á félaginu. Ráðið felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að vinna að nýjum samningi.