Rekstur HSÞ - ósk um nýjan samning
Málsnúmer 202409129
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 197. fundur - 08.10.2024
Fyrir fjölskylduráði liggur beiðni um endurnýjun á rekstrarsamning frá stjórn HSÞ. Á fund fjölskylduráðs mætir Gunnhildur Hinriksdóttir framkvæmdastjóri HSÞ og gerir grein fyrir beiðninni ásamt því að vera með kynningu á rekstri sambandsins.
Fjölskylduráð þakkar Gunnhildi fyrir komuna á fundinn. Ráðið felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að gera drög að nýjum samningi við HSÞ og leggja fyrir ráðið að nýju.
Fjölskylduráð - 200. fundur - 05.11.2024
Fyrir fjölskylduráði liggja drög að nýju samkomulagi við HSÞ.
Fjölskylduráð felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að undirrita samning við HSÞ.