Fara í efni

Skipulags- og matslýsing fyrir deiliskipulag Dettifossvegar

Á fundi sínum þann 25. október s.l. samþykkti bæjarstjórn Norðurþings tillögu skipulags- og byggingarnefndar frá 17. október að skipulags- og matslýsingu deiliskipulags fyrir Dettifossveg innan Vatnajökulsþjóðgarðs í Norðurþingi.

Skipulags- og matslýsingin er nú til kynningar á heimasíðu Norðurþings.  Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við lýsinguna er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir 1. desember 2012.  Tekið verður á móti skriflegum ábendingum á bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða í tölvupósti (gaukur@nordurthing.is).

Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi