Fara í efni

Tvær tillögur að breytingum aðalskipulags Norðurþings 2010-2030

Bæjarstjórn Norðurþings auglýsir hér með til almennrar kynningar skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tvær tillögur að breytingum aðalskipulags Norðurþings 2010-2030 ásamt tilheyrandi umhverfisskýrslum.

 

 

  1. Vegtenging frá hafnarsvæði Húsavíkur að iðnaðarsvæði á Bakka.  Breytingin felst í breyttri legu tengivegar milli hafnarsvæðis og iðnaðarsvæðis og breyttum tengingum vegarins á hafnarsvæði.  Felld er niður tenging vegarins af Húsavíkurhöfða inn á þjóðveg nr. 85.  Nú er gert ráð fyrir að hluti vegarins verði um jarðgöng sem áætluð eru 970 m löng um Húsavíkurhöfða.  Veginum er aðallega ætlað að vera fyrir þungaumferð tengdri iðnaðasvæðinu.  Skipulagstillagan er sett fram á einu blaði A1 þar sem fyrirhuguð breyting er sýnd í samanburði við gildandi skipulag (mkv. 1:10.000) auk greinargerðar skipulagsins.  Umhverfisskýrsla er í sjálfstæðu hefti.
  2. Breytt lega Hringvegar vð Jökulsá á Fjöllum.  Í breytingartillögunni felst að veglínu Hringvegar er hliðrað til suðurs þar sem hringvegurinn liggur yfir Jökulsá á Fjöllum.  Breytingin gengur út frá gerð nýrrar brúar yfir Jökulsá um 500 m sunnan núverandi brúar.  Aflagður akvegur og gamla brúin verða áfram reiðleið og opin fyrir hjólandi og gangandi umferð.  Skipulagstillagan ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu er sett fram á einu blaði í stærð A2.

 

Skipulagstillögurnar ásamt umhverfisskýrslum verða til sýnis á bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík frá 30. janúar 2014 til 14. mars 2014.  Ennfremur verður hægt að skoða skipulagstillögurnar á heimasíðu Norðurþings (nordurthing.is).  Þeim sem eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar til og með 14. mars 2014.  Skila skal skriflegum athugasemdum til bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.  Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar teljast þeim samþykkir.

 

Húsavík 28. janúar 2014

Gaukur Hjartarson

Skipulags- og byggingarfulltrúi