Fimmtánda Jökulsárhlaupinu lauk nú laugardaginn 11. ágúst. Um er að ræða utanvegahlaup sem er haldið í stórbrotinni náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs og Ásbirgis. Hægt er að hlaupa 13 km, 21,2 km og 32,7 km. Vinsældir og orðspor hlaupsins hafa borist víða og komast færri að en vilja ár hvert.