Fjölmenni var við opnun tilboða í Flókahúsið sem fram fór í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík kl 16 í dag. Þrjú tilboð bárust, frá Sölkusiglingum, Norðursiglingu og Gentle Giants.
Sveitarstjórn tók upp bókun frá 9. fundi framkvæmdanefndar Norðurþings og samþykkti samhljóða að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum fyrir valdar lóðir þar sem útgjöld sveitarfélagsins vegna gatnagerðar eru minniháttar.