Fara í efni

Fréttir

Norðurþing auglýsir eftir sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs

Norðurþing auglýsir eftir sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs

Norðurþing óskar eftir að ráða öflugan leiðtoga í starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs sveitarfélagsins. Undir sviðið falla m.a. yfirstjórn umhverfismála, framkvæmda, eigna- og tækjasjóðs og þjónustumiðstöðva.
02.03.2023
Tilkynningar
Katrín sveitarstjóri og Frímann varaformaður sóknarnefndar

Styrkur til framkvæmda á lóð Húsavíkurkirkju

Á fundi byggðarráðs Norðurþings þann 23. febrúar sl. samþykkti ráðið að styrkja Sóknarnefnd Húsavíkurkirkju um allt að 5 milljónir króna á árinu 2023 vegna framkvæmda á lóð við kirkjuna sem fyrirhugað er að hefjist nú í vor.
02.03.2023
Tilkynningar
Hér má sjá kippu af skisporet.no

Gönguskíðaspor við Kópasker

Skíðaganga hefur átt vaxandi vinsældum að fagna undanfarin ár. Hægt er að búa til gönguspor með tiltölulega einföldum útbúnaði og hefur verið troðið gönguspor við Kópasker þegar aðstæður leyfa undanfarin ár. Kristján Halldórsson hefur séð um að leggja gönguspor í sínum frítíma rétt utan við Kópasker og hafa margir notið góðs af því.
28.02.2023
Tilkynningar
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri og Jónas Halldór Friðriksson framkvæmdastjóri Völsungs

Norðurþing og Völsungur hafa skrifað undir nýjan samstarfssamning

Norðurþing og Völsungur hafa skrifað undir nýjan samstarfssamning.
22.02.2023
Tilkynningar
Öskudagur í Norðurþingi 2023

Öskudagur í Norðurþingi 2023

Það geta margir verið sammála um að öskudagurinn sé einn af hápunktum ársins! Við viljum bjóða krakka velkomna til okkar til þess að syngja og fá að launum sælgæti.
21.02.2023
Tilkynningar
Tilkynning frá Slökkviliði Norðurþings

Tilkynning frá Slökkviliði Norðurþings

Á morgun laugardaginn 18. febrúar, mun slökkviliðið halda æfingu við gamla golfskálann.
17.02.2023
Tilkynningar
Þjónustukönnun Norðurþings 2022

Þjónustukönnun Norðurþings 2022

Gallup vann könnun fyrir Norðurþing og hér má finna niðurstöður hennar.
15.02.2023
Tilkynningar
Sumarfrístund á Húsavík 2023

Sumarfrístund á Húsavík 2023

Undirbúningur sumarfrístundar á Húsavík er í fullum gangi. Starfið verður með svipuðu sniði og undanfarin ár.
15.02.2023
Tilkynningar
Félagsþjónusta Norðurþings óskar eftir starfsmanni í heimaþjónustu

Félagsþjónusta Norðurþings óskar eftir starfsmanni í heimaþjónustu

Félagsþjónusta Norðurþings óskar eftir starfsmanni í heimaþjónustu á austursvæði Norðurþings
15.02.2023
Tilkynningar
Stöndum í þessu saman!

Stöndum í þessu saman!

Íslenska gámafélagið og Norðurþing biðla til íbúa að huga betur að flokkun heimilissorps.
14.02.2023
Tilkynningar
Mynd: Katrín Sigurjónsdóttir

131. fundur sveitarstjórnar Norðurþings

Fyrirhugaður er 131. fundur sveitarstjórnar Norðurþings, fimmtudaginn 16, febrúar nk. kl. 13:00 í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík.
14.02.2023
Tilkynningar
Mynd: Hafþór Hreiðarsson

Íbúafundur um framtíð Mærudaga

Þann 28. febrúar nk. verður staðfundur í Stjórnsýsluhúsinu á Húsavík þar sem Mærudagar og framtíð þeirra verða til umræðu.
13.02.2023
Tilkynningar