Fara í efni

Fréttir

Sorphreinsun - leiðrétting

Sorphreinsun - leiðrétting

Í gær voru íbúar í norðurhluta beðnir um að moka frá tunnum eftir að veður gengi niður. Hið rétta er að íbúar í suðurbænum þyrftu að moka frá tunnum vegna væntanlegrar sorphreinsunar þessa helgi. Leiðréttist það hér með og er beðist velvirðingar á þessum mistökum.
03.11.2012
Tilkynningar
Tilkynning frá Sorpsamlagi Þingeyinga

Tilkynning frá Sorpsamlagi Þingeyinga

Búast má við að sorphirða í norðurhluta bæjarins falli niður á morgun vegna veðurs, athugað verður með hreinsun á sunnudag. Íbúar  eru beðnir um að moka frá tunnum eftir að veðri slotar.
02.11.2012
Tilkynningar
Íbúafundir á Húsavík og Kópaskeri

Íbúafundir á Húsavík og Kópaskeri

Sýslumaðurinn á Húsavík, almannavarnanefnd Þingeyinga, Viðlagatrygging Íslands, Veðurstofa Íslands og almannavarnadeild ríkislögreglustjórans boða til íbúafunda vegna skjálftavirkni á Norðurlandi. Fundirnir verða þriðjudaginn 30. október. Á Húsavík verður fundurinn kl 17:30 á Fosshóteli, Ketilsbraut 22 og á Kópaskeri verður fundur kl 21:00 á Skjálftasetrinu Akurgerði 6.
30.10.2012
Tilkynningar
Kynningarbæklingur um jarðskjálfta

Kynningarbæklingur um jarðskjálfta

Kynningarbæklingi um varnir og viðbrögð við jarðskjálftum verður í dag dreift á öll heimili á Húsavík, Reykjahverfi, Tjörnesi og Þingeyjarsveit suður að Vestmannsvatni og Gvendarstöðum.
25.10.2012
Tilkynningar
Truflanir á sambandi við skiptiborð Norðurþings

Truflanir á sambandi við skiptiborð Norðurþings

Vegna viðgerðar á raflínu Rarik, nánar til tekið Kópaskerlínu, sem er afleiðing af óveðri í september sl. má búast við truflunum í dag og á morgun á símasambandi við skiptiborð Norðurþings vegna tímabundins rafmagnsleysis.
25.10.2012
Tilkynningar
Næsti fundur bæjarstjórnar

Næsti fundur bæjarstjórnar

Næsti fundur bæjarstjórnar Norðurþings verður haldinn í Stjórnsýsluhúsinu á Húsavík þann 23. október n.k. og hefst hann klukkan 16:15.  Dagskrá fundarins verður auglýst síðar.
17.10.2012
Tilkynningar
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs sem fram fer þann 20. október 2012, er hafin við embætti sýslumannsins á Húsavík.
10.10.2012
Tilkynningar
Ernir mun fljúga sex daga vikunnar til Húsavíkur

Ernir mun fljúga sex daga vikunnar til Húsavíkur

Flugfélagið Ernir hefur ákveðið að bæta við flugum til Húsavíkur og fljúga sex daga vikunnar samtals 10 flug í viku.
09.10.2012
Tilkynningar
Fálkasetur í Ásbyrgi

Fálkasetur í Ásbyrgi

Fimmtudagskvöldið 11. október verður ný vefsíða Fálkaseturs Íslands formlega opnuð. Af því tilefni er boðað til fræðslufundar um þemu Fálkasetursins.
04.10.2012
Tilkynningar
Tilkynning frá samráðshóp um áfallahjálp í Þingeyjarsýslum

Tilkynning frá samráðshóp um áfallahjálp í Þingeyjarsýslum

Viðrunarfundir með bændum og björgunaraðilum sem tóku þátt í fjárleitum tengt hamfaraveðri eru fyrirhugaðir á tímabilinu 1-12 október og eru liður í áfallahjálp.  Nánara fyrirkomulag verður auglýst síðar. 
01.10.2012
Tilkynningar
Frá Hrútadegi 2011/mynd Framsyn.is

Hrútadagurinn á Raufarhöfn verður þann 29.september 2012.

Þar verða til sölu hrútar frá mörgum þeim bæjum sem hafa söluleyfi úr Norðausturhólfi.  
28.09.2012
Tilkynningar
Kísilkarbíðverksmiðja Saint Gobain á Bakka – drög að tillögu að matsáætlun

Kísilkarbíðverksmiðja Saint Gobain á Bakka – drög að tillögu að matsáætlun

Nú stendur yfir kynning á drögum að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðrar 25 000 tonna kísilkarbíðverksmiðju Saint Gobain á Bakka við Húsavík.  
21.09.2012
Tilkynningar